Góðverkasamtökin Betri Bær

05.04.2008 11:19:27 / godverkasamtokin

Bærinn hreinsaður

Góðverkasamtökin Betri Bær fagnar innilega þeirri ákvörðun að nú verði bærinn hreinsaður í eitt skiptið fyrir öll. Þar sem veggir eru hreinsaðir og málaðir auk þess sam að allar auglýsingar og rusl hefur verið fjarlægt.

Það er stór munur á að rölta niður Laugarveginn í blíðunni í dag heldur en var fyrir viku síðan! þetta yljar okkur um hjartarætur.

Við höfum vel fylgst með þeim stöðum þar sem við máluðum yfir. Á þessari viku var ekki á einum stað búið að tagga aftur yfir þar sem við máluðum! Það er mikið fagnaðarefni og sýnir það svart á hvítu að það virkar að mála yfir tagg.

Samt sem áður má fólk ekki sofna á verðinum núna þegar búið verður að hreinsa borgina, heldur verður fólk að vera vakandi áfram og mála yfir taggið um leið og fólk verður þess vart!

Það er svo miklu skemmtilegar að búa í fallegum bæ og geta boðið ferðamönnum upp á fallega og aðlaðandi borg!

Enn og aftur þökkum við fyrir þá vitundarvakningu sem hefur orðið og skorum við fólk til þess að njóta veðurblíðunnar með því taka eitt rölt niður laugarveginn og dást að því hvað borgin getur verið falleg á björtum vordegi.

stöndum saman um fallegri og hreinni bæ.

með sólskins kveðju,
Góðverkasamtökin Betri Bær

» 25 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 16:50:00 / godverkasamtokin

Við þökkum góð viðbrögð

Góðverkasamtökin Betri Bær þakkar kærlega þau miklu og jákvæðu viðbrögð sem við höfum fengi með þessum gjörningi okkar síðast liðna nótt.

Ætlun okkar er ekki að mæta á hverri nótt og mála yfir veggjakrot heldur er okkar markmið að vekja almenning, íbúðar- og búðareigendur á því að ábyrgðið er í OKKAR höndum, við berum ábyrgð á okkar húsum og eignum og það er á okkar ábyrgð að halda þeim hreinum.

Þessi gjörningur okkar var ákveðinn um daginn, ein stutt ferð í málingavöru verslun og svo 2 klst rölt niður laugaveginn með pensilinn að vopni.

Það tekur oftast innan við mínútu að klína smá málingu yfir krotið. Og ætti að vera lítið mál, ef metnaður er fyrir hendi hjá verslunareigandanum að bjóða upp á fallega og aðlaðandi búð.

Rannsóknir hafa sýnt það að þar sem veggjakrot fær ekki að hanga uppi, heldur sé málað yfir það jafn óðum, þá nenna veggjakrotararnir ekki að eyða orku í að krota þar framar. Því er mjög mikilvægt að málað sé STRAX yfir það sem krotað er á vegginn!

Margir hafa sýnt áhuga á að ganga í félagið til að geta mætt með málingu til að mála yfir krot. En málið er einfaldlega það, að það þarf ekkert félag til að fara út með eina litla málingarföru og pensil til að mála yfir einn vegg eða svo.

það getur hver sem er tekið smá rölt um bæinn eða í hverfinu sínu með málingu og pensil. Haldi fólk að þetta sé svo mikið mál og dýrt að kaupa þessa málingu þá vil ég benda á það að það fóru ekki nema tæpir 5 lítrar af hvítri málinu á allan laugaveginn.

Að lokum vil ég taka það fram að við í Góðverkasamtökunum Betri Bær gerum stóran greinamun á kroti og listaverkum. við erum miklir áhuga menn um falleg graffiti á réttum stöðum, við teljum það aðeins fegra fallega borg, en þegar það er verið að krota og tagga er það einungis til að skemma. Þetta eru tveir ólíkir hlutir sem fólk má ekki rugla saman

munið, við berum sjál ábyrgð á því að borgin okkar sé fallega og okkur til sóma!

með bestu kveðju,
Góðverkasamtökin Betri Bær

P.s við viljum einnig minna á að þeir sem vilja hafa samband við okkur geta gert það með því að senda póst á godverkasamtokin@gmail.com

» 21 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 06:26:07 / godverkasamtokin

Málum bæinn hvítan.



Í nótt, aðfaranótt fimmtudagsins 27.mars fóru Góðverkasamtökin betri bær í fyrsta sinn á stjá. Markmið þeirra var að fegra miðbæ Reykjavíkur með því að mála með hvítri málningu yfir allt veggjakrot á hvítum flötum niður Laugavegin. Með aðgerðum sínum í nótt vilja samtökin vekja athygli á þeirri sjónmengum sem veggjakrot í bænum er, og í leið mótmæla aðgerðarleysi þeirra sem eiga hlut að máli að leyfa því að standa. Það krefst hvorki mikillar vinnu né peninga að mála reglulega yfir veggjakrot. Besta leiðin til að sporna við veggjakroti er að leyfa því ekki að standa!

Með bestu kveðju,
Góðverkasamtökin betri bær

Nokkrar myndir sem nota má með góðfúslega leyfi samtakana er að finna á síðunni http://www.flickr.com/photos/25038330@N05/

» 153 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 14260